Haukar skila leyfisgögnum
Haukar hafa nú skilað leyfisumsókn sinni ásamt fylgigögnum og hafa þá bæði Hafnarfjarðarfélögin í leyfiskerfinu skilað sínum gögnum, en Landsbankadeildarlið FH skilaði í morgun.
Haukar leika sem kunnugt er í 1. deild og er þetta í fyrsta sinn sem þeir undirgangast leyfiskerfið.