Gögn Þórsara hafa borist
Leyfisgögn Þórsara, fylgigögn með umsókn um þátttökuleyfi í 1. deild karla 2008, hafa nú borist og eiga því einungis eftir að berast gögn frá fjórum félögum.
Tvö þessara félaga hafa stðafest að gögn þeirra hafi farið í póst í dag - ÍBV og KS/Leiftur - og þau ættu því að berast á miðvikudag. Hin tvö félögin eru Stjarnan og Selfoss.