Bikarmeistararnir búnir að skila
VISA-bikarmeistarar FH hafa nú skilað fylgigögnum með leyfisumsókn fyrir keppnistímabilið 2008 og þar með hefur þriðjungur Landsbankadeildarliða skilað leyfisgögnum - 4 af 12 liðum.
Eins og fram hefur komið er skiladagur gagna, annarra en fjárhagslegra, í dag 15. janúar. Skiladagur fjárhagslegra gagna er síðan 20, febrúar.