Keflvíkingar númer tvö í Landsbankadeild
Keflvíkingar urðu í dag annað félagið í Landsbankadeild til að skila fylgigögnum með leyfisumsókn fyrir keppnistímabilið 2008. Þau gögn sem skilað er nú eru í öllum öðrum forsenduflokkum en fjárhagslegum.
Skiladagsetning gagna sem snúa að fjórum forsenduflokkum - Knattspyrnulegum forsendur, mannvirkjaforsendum, starfsfólki og stjórnun, og lagalegum forsendum - er 15. janúar, en skiladagsetning fjárhagslegra gagna er 20. febrúar.