KSÍ endurnýjar samning við Errea
Knattspyrnusamband Íslands hefur framlengt samning sinn við ítalska íþróttavöruframleiðandann Errea sem staðið hefur síðan 2002 og munu landslið Íslands leika í búningum frá fyrirtækinu næstu 4 árin.
Samningurinn nær yfir búnað og búninga á öll landslið Íslands og er umtalsvert hagstæðari en fyrri samningur. Í framhaldinu verður nýr landsliðsbúningur kynntur til sögunnar síðar á árinu.
Það er heildverslunin Safalinn sem er með umboð fyrir Errea hér á Íslandi.