• mið. 09. jan. 2008
  • Leyfiskerfi

Víkingur Ólafsvík hefur skilað leyfisgögnum

Víkingur Ólafsvík
vikingur-gulur

Víkingur Ólafsvík skilaði inn leyfisgögnum í dag og er Víkingur því annað félagið í 1. deild karla til að skila, en KA-menn voru fyrstir.  Um er að ræða fylgigögn með leyfisumsókn, önnur en fjárhagsleg.

Skilastaðan verður uppfærð jafnóðum hér á ksi.is og verður því hægt að fylgjast með hverjir hafa skilað.  Skiladagsetning gagna, annarra en fjárhagslegra er 15. janúar, en skiladagur fjárhagslegra gagna er 20. febrúar.

Í 2. kafla leyfishandbókarinnar er skýrt kveðið á um að beita skuli viðurlögum ef tímamörk eru ekki uppfyllt.




2.2.3.2        Tímamörk ekki uppfyllt

Ef leyfisumsækjandi uppfyllir ekki sett tímamörk um framlagningu leyfisgagna skal hann sæta viðurlögum.  Við ákvörðun þeirra skal taka mið af alvarleika brotsins.  Eftirfarandi viðurlögum er hægt að beita:

1)   Viðvörun og sekt; við fyrsta brot skal beita dagsektum að upphæð kr 1.500 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 30.000.

2)   Áminning og sekt; við ítrekað brot skal skal beita dagsektum að upphæð kr 3.000 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 60.000.

3)   Stigatap; við alvarlegt og ítrekað brot er jafnframt heimilt að draga allt að 3 stig frá félaginu í deildarkeppninni.

Ítrekunarkvöð fellur niður ef tímamörk hafa verið uppfyllt í 3 ár samfleytt.