• mið. 09. jan. 2008
  • Leyfiskerfi

Valsmenn fyrstir að skila í Landsbankadeildinni

Valur
Valur2008

Íslandsmeistarar Vals urðu í dag fyrsta Landsbankadeildarliðið til að skila fylgigögnum með leyfisumsókn fyrir keppnistímabilið 2008.  Gögn sem nú er skilað snúa að knattspyrnulegum forsendum, mannvirkjaforsendum, starfsfólki og stjórnun, og lagalegum forsendum - þ.e. öllum öðrum en fjárhagslegum.

Þar með hefur eitt félag í hvorri deild sem undirgengst leyfiskerfið skilað gögnum - KA í 1. deild karla og Valsmenn sem fyrr greinir í Landsbankadeild karla.  Gögnum, öðrum en fjárhagslegum, á að skila eigi síðar en 15. janúar, en skiladagsetning fjárhagslegra gagna er 20. febrúar.