• þri. 08. jan. 2008
  • Ársþing

Kosningar í stjórn á 62. ársþingi KSÍ.

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ minnst hálfum mánuði fyrir þing.  Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests.

Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:

  1. Kosning formanns, annað hvert ár, til tveggja ára í senn.
  2. Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára, en fjórir menn ganga úr         aðalstjórn á hverju ári.
  3. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.
  4. Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.
  5. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.
  • Formannskjör fer ekki fram – Geir Þorsteinsson var kjörinn formaður til tveggja ára á 61. ársþingi KSÍ í febrúar 2007.
  • Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 62. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk.:

Í aðalstjórn

Lúðvík S. Georgsson, varaformaður Reykjavík

Jón Gunnlaugsson, ritari                  Akranesi

Ástráður Gunnarsson                       Reykjanesbæ

Ingibjörg Hinriksdóttir                      Kópavogi 

Tilkynning um framboð í aðalstjórn skal berast skrifstofu KSÍ skriflega eigi síðar en 26. janúar nk. Allir ofangreindir aðalstjórnarmenn gefa kost á sér til endurkjörs nema Ástráður Gunnarsson.

Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn: (Tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2009)

Halldór B. Jónsson, varaformaður   Reykjavík

Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri     Reykjavík

Stefán Geir Þórisson                        Reykjavík

Vignir Már Þormóðsson                    Akureyri                   

  • Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 62. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk.:

                   Aðalfulltrúar landsfjórðunga

                   Jakob Skúlason                           Vesturland

                   Björn Friðþjófsson                       Norðurland

                   Guðmundur Ingvason                  Austurland

                   Einar Friðþjófsson                       Suðurland

Tilkynning um framboð í aðalfulltrúa landsfjórðunga skal berast skrifstofu KSÍ skriflega eigi síðar en 26. janúar nk. Allir ofangreindir aðalfulltrúar landsfjórðunganna gefa kost á sér til endurkjörs. 

  • Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 62. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk.:

                   Varamenn í aðalstjórn

                   Jóhannes Ólafsson                       Vestmannaeyjum

                   Kjartan Daníelsson                        Reykjavík

                   Þórarinn Gunnarsson                    Reykjavík      

Allir varamenn í aðalstjórn gefa kost á sér til endurkjörs.

Með tilkynningu um framboð er óskað eftir stuttri ferilskrá til birtingar á heimasíðu KSÍ.