Æfingar hjá U16 og U17 karla á Austurlandi
Æfingar verða fyrir U16 og U17 karla á Austurlandi, sunnudaginn 13. janúar næstkomandi. Æft verður tvisvar þennan dag í Fjarðabyggðarhöllinni og hafa 23 leikmenn verið valdir til æfinganna sem verða undir stjórn Freys Sverrissonar, þjálfara U16 karla.