3. stigs þjálfaranámskeið í Reykjavík 18.-20. janúar
KSÍ heldur 3. stig þjálfaranámskeið í Reykjavík helgina 18.-20. janúar. Námskeiðið fer fram í Fræðslusetri KSÍ í Laugardal, fylgst verður með leik í Reykjavíkurmótinu sem fram fer í Egilshöllinni og farið verður á æfingu hjá U-17 landsliði Íslands í Kórnum í Kópavogi.
Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og eru áhugasamir hvattir til þess að skrá sig sem allra fyrst. Dagskrá námskeiðsins má sjá hér að neðan.