Tillögur fyrir ársþing KSÍ þurfa að berast í síðasta lagi 9. janúar
62. ársþing Knattspyrnusambands Íslands verður haldið í húsakynnum KSÍ laugardaginn 9. febrúar 2008. Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi efnisatriði tengd þinghaldinu:
1 Skuldir
Aðilar sem vanrækja uppgjör á gjöldum, sem greiða skal til KSÍ, missa rétt til þingsetu. Hjálagt er yfirlit yfir viðskiptastöðu félagsins hjá KSÍ. Þeim félögum sem skulda KSÍ er bent á að hafa tafarlaust samband við Pálma Jónsson, fjármálastjóra KSÍ.
2 Tillögur og málefni
Tillögur og málefni þau, er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi, skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi miðvikudaginn 9. janúar nk.
3 Gisting
Hilton Nordica býður þingfulltrúum og þinggestum gistingu sem hér greinir:
Eins manns herbergi með morgunverð kr. 8.900.- pr. nótt
Tveggja manna herbergi með morgunverð kr. 10.900.- pr. nótt
Sambandsaðilar skulu sjálfir panta herbergi í síma 444-4000 og þegar það er gert skal vísað til þess að það sé gert í tengslum við þingið.
4 Dagskrá
Þingið verður sett að morgni laugardaginn 9. febrúar og gert er ráð fyrir að því ljúki um kl. 16:00 sama dag. KSÍ býður þingfulltrúum til sameiginlegs kvöldverðar. Nákvæm dagskrá verður send sambandsaðilum síðar.
5 Fjöldi fulltrúa
Hér að neðan má sjá lista yfir fjölda þingfulltrúa. Sambandsaðilar eru beðnir um að fara yfir listann og gera athugasemdir ef þörf krefur.