Frítt á unglingadómaranámskeið
Frá og með 1. janúar 2008 verða þátttakendur á unglingadómaranámskeiðum ekki krafðir um þátttökugjöld.
Hér er um nýbreytni að ræða og liður í því að fjölga dómurum og efla dómgæsluna.
Á næstu mánuðum og vikum verða haldin námskeið víðsvegar um landið.
Námskeiðin verða auglýst hér á heimasíðunni og eru þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í námskeiðunum hvattir til að skrá sig.