Kvennalandsliðið í 21. sæti styrkleikalista FIFA
Íslenska kvennalandsliðið er í 21. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Er það sama sæti og liðið var í desember árið 2006. Þýskaland endar árið 2007 í efsta sæti styrkleikalistans.
Ekki eru miklar breytingar á efstu sætum listans en næsti listi verður birtur 21. mars 2008. Kvennalandsliðið hefur verið í 21. sæti styrkleikalista FIFA í síðustu sex skiptin er listinn hefur verið birtur eða síðan í september 2006.