Vináttulandsleikur gegn Wales 28. maí
Íslendingar munu spila vináttulandsleik gegn Wales, miðvikudaginn 28. maí 2008 og fer leikurinn fram á Laugardalsvelli. Þetta er sjötti vináttulandsleikurinn sem fyrirhugaður er á næsta ári en leikið verður við Færeyjar og Slóvakíu í mars sem og við Armeníu, Hvíta-Rússland og Möltu á æfingamóti í febrúar.
Ísland og Wales hafa mæst sex sinnum í A-landsleik karla og hafa Íslendingar farið einu sinni með sigur af hólmi. Tvisvar sinnum hefur orðið jafntefli en Walesverjar hafa sigrað þrisvar sinnum.