Ísland í 90. sæti FIFA styrkleikalistans
Nýr styrkleikalisti FIFA var gefinn út í morgun og er íslenska landsliðið í 90. sæti listans og hefur fallið um eitt sæti frá því að síðasti listi var gefinn út. Argentínumenn halda toppsæti FIFA styrkleikalistans.
Litlar breytingar eru á listanum og er engin breyting á efstu 20 sætunum að þessu sinni. Hollendingar, mótherjar Íslendinga í undankeppni HM 2010, eru í 9. sæti, Skotar í því 14., Normenn í 29. sæti og Makedóníumenn í 58. sæti.