Dregið í riðla hjá U17 og U19 kvenna
Í dag var dregið í riðla í forkeppni hjá U17 og U19 kvenna fyrir EM 2009. Riðlarnir verða leiknir um haustið 2008. U17 er í riðli með Ítalíu, Frakklandi og Azerbaijan. U19 er í riðli með Írlandi, Ísrael og Grikklandi.
Riðillinn hjá U17 kvenna verður leikinn á Ítalíu en riðill U19 kvenna fer fram í Ísrael. Riðillinn hjá U19 kvenna fer fram 25. til 30. september. Einnig verður í dag dregið í milliriðla hjá sömu liðum fyrir EM 2008. Fréttir af því koma hér á síðuna og leið og þær berast.