Grasrótarverðlaun UEFA og KSÍ árið 2007
Í dag voru afhentar viðurkenningar fyrir grasrótarviðburði ársins í knattspyrnu. Það eru KSÍ og UEFA sem veita þessar viðurkenningar árlega og fór afhendingin fram í dag í höfuðstöðvum KSÍ.
Það voru þeir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ og Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður mótadeildar KSÍ, sem afhentu viðurkenningarnar í dag.
Viðurkenningarnar í ár fengu eftirtaldir aðilar:
KA fyrir N1 mótið sem er grasrótarviðburður ársins (Most valuable grassroots event). KA menn hafa haldið þetta mót fyrir 5. flokk karla með miklum glæsibrag í 21 ár. Mótið og umfang þess hefur vaxið mikið og á síðasta mót mættu 34 félög með 142 lið.
Íþróttafélagið Nes fékk viðurkenningu fyrir knattspyrnu fatlaðra (Best disabled football event) Nes hélt Íslandsleika fatlaðra í knattspyrnu í Reykjaneshöllinni í apríl við frábærar undirtektir.
Púkamótið á Ísafirði fyrir leikmenn í eldri flokki (Best Veterans Football Event 2006). Þetta í þriðja skiptið sem það er haldið en tilgangur mótsins er að byggja upp og vekja athygli á sjóði sem ætlað er að styrkja ísfirska knattspyrnu.
Félögin fengu við þetta tilefni viðurkenningarskjal frá UEFA og KSÍ, boli, derhúfur og bolta.
Mynd: Frá afhendingu grasrótarviðurkenninganna. Frá Íþróttafélaginu Nes: Jenný Magnúsdóttir, Jósef William Daníelsson og Vilhjálmur Þór Jónsson. Frá KA: Gunnar Gunnarsson. Frá Púkamótinu: Haraldur Leifsson, Haraldur Leifsson og Guðmundur Ólafsson. Á myndinni eru einnig Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ og Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ.