Riðill U17 karla fyrir EM 2009 leikinn á Íslandi
Í dag var dregið í undankeppni EM 2009 hjá U17 og U19 karla og fór drátturinn fram í Cannes. Hjá U17 drógust Íslendingar í riðil með Sviss, Noregi og Úkraínu en hjá U19 karla leika Íslendingar gegn Svíþjóð, Austurríki og Makedóníu.
Ljóst er að riðillinn hjá U17 karla verður leikinn hér á Íslandi og verða leikdagar 24., 26. og 29. september 2008. Leikstaðir verða ákveðnir síðar.
Ferðalag íslenska U19 liðsins verður heldur lengra en þeirra riðill verður leikinn í Makedóníu. Leikdagar verða 11., 13. og 16. október 2008.
Úrslitakeppni U17 karla fer fram í Þýskalandi árið 2009 en úrslitakeppni U19 karla fer fram í Úkraínu.