Dregið í milliriðla EM hjá U17 og U19 kvenna 11. desember
Í U19 er Ísland í efsta (A) styrkleikaflokki ásamt Þýskalandi, Noregi, Danmörku Finnlandi og Írlandi.
Þegar dregið verður fær Ísland eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki:
B: Spánn, Skotland, England, Ungverjaland, Svíþjóð og Ítalía
C: Rússland, Austurríki, Úkraína, Hollandi, Belgía og Sviss
D: Tékkland, Pólland, Serbía, Hvíta-Russland, Portúgal og Rúmenía
Riðlakeppnin fer fram 24.-29. apríl 2008. Sigurvegarar riðlanna (6), liðið með bestan árangur í 2. sæti og Frakkar (gestgjafar) fara í úrslitakeppnina sem fram fer í Frakklandi í júlí 2008.
Í U17 er Ísland í öðrum (B) styrkleikaflokki ásamt Svíþjóð, Skotlandi og Hollandi.
Þegar dregið verður fær Ísland eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki:
A: Frakkland, Þýskaland, Finnland og England
C: Tékkland, Sviss, Danmörk og Noregur
D: Írland, Belgía, Pólland og Rússland
Eftir dráttinn í desember verður ákveðið hvar og hvenær milliriðlarnir (eiga að klárast fyrir miðjan apríl 2008) fara fram. Sigurvegarar riðlanna fara í 4ra liða úrslitakeppni sem fram fer í maí 2008.
Við sama tækifæri verður dregið í forkeppni hjá U17 og U19 kvenna fyrir EM 2009.