Ísland í 9. riðli fyrir undankeppni HM 2010
Dregið hefur verið í riðla fyrir undankeppni HM 2010. Drátturinn fór fram í Durban í Suður-Afríku í dag, sunnudag, og hafnaði Ísland í 9. riðli, sem er eini fimm liða riðillinn, en í öllum hinum eru sex lið. Þetta þýðir að ekkert lið úr neðsta styrkleikaflokknum er með Íslandi í riðli.
Í riðlinum eru þessar þjóðir:
- Holland
- Skotland
- Noregur
- Makedónía
- Ísland
Fulltrúar þessara þjóða koma saman 14. desember næstkomandi til að ræða niðurröðun og dagsetningar leikja.
Hollendingum höfum við ekki mætt síðan Ólympíulandslið þjóðanna voru saman í riðli í undankeppni Ólympíuleikanna í Seoul 1988.
Skotum höfum við mætt fimm sinnum og hafa þeir skosku alltaf unnið. Skotar voru með okkur í riðli í undankeppni EM 2004.
Norðmönnum höfum við mætt oftar en nokkru öðr landsliði, eða 25 sinnum.
Makedónía var í okkar riðli í undankeppni HM 1998 og eru þeir tveir leikir einu viðureignir þjóðanna hingað til.
Skoða má upplýsingar um alla landsleiki og fyrri undankeppnir í valmyndinni hér til vinstri. Smellið á A "lið karla" til að skoða nánar.