Æft á Parken í kvöld - Síðasta æfing fyrir leik
Íslenska landsliðið undirbýr sig nú af kappi fyrir leikinn gegn Dönum og í kvöld æfði liðið á keppnisvellinum sjálfum, hinum kunna Parken. Ólafur Jóhannesson tilkynnti byrjunarliðið þar og má sjá það annars staðar hér á síðunni.
Þjálfarar og aðrir starfsmenn landsliðsins eru líka önnum kafnir við undirbúninginn. Á myndinni hér að ofan er hinn getspaki búningastjóri, Björn Ragnar Gunnarsson, sendi okkur má sjá æfingafatnaðinn tilbúinn fyrir æfinguna á Parken.
Leikurinn hefst kl. 19:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn.