Fyrsta æfing Ólafs í dag
Íslenska karlalandsliðið kom í dag til Kaupmannahafnar og komu leikmenn úr ýmsum áttum. Fljótlega eftir komuna var haldið á æfingu og stjórnaði þar Ólafur Jóhannesson, nýráðinn landsliðsþjálfari, sinni fyrstu landsliðsæfingu.
Leikið verður við Dani á miðvikudaginn á Parken en Danir töpuðu í dag fyrir Norður Írum í Belfast, 2-1.
Símamyndina hér að ofan tók hinn haukfráni búningastjóri, Björn Ragnar Gunnarsson, á æfingunni í dag.