Tap gegn Þjóðverjum hjá U21 karla
Íslenska U21 karlalandsliðið tapaði í kvöld fyrir Þjóðverjum í vináttulandsleik en leikið var í Trier. Lokatölur urðu 3-0 heimamönnum í vil eftir að þeir höfðu haft eins marks forystu í hálfleik.
Íslenska liðið heldur á morgun til Belgíu en þar verður leikið við heimamenn og fer leikurinn fram í Brussel á þriðjudaginn. Sá leikur er liður í undankeppni EM U21.