Norðurlandamót U16 stúlkna á Íslandi 2008
Næsta sumar mun Ísland halda Opna Norðurlandamót U16 stúlkna en mótið var hér síðast sumarið 2002 og fór þá fram í Reykjavík. Næsta sumar er stefnt að því að leikið verði á Suðurnesjum og á Suðurlandi og munu liðin dvelja í Keflavík og á Selfossi á meðan mótinu stendur.
Fyrstu leikir mótsins fara fram 30. júní og leikið verður til úrslita 5. júlí. Á næstu mánuðum verður dregið í riðla og leikstaðir endanlega ákveðnir.