Byrjunarliðið hjá U21 karla tilbúið
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Þjóðverjum í vináttulandsleik í Trier í kvöld. Leikurinn er undirbúningur fyrir leik gegn Belgum sem fer fram á þriðjudaginn og er í undankeppni EM.
Byrjunarliðið (4-3-3):
Markvörður: Haraldur Björnsson
Hægri bakvörður: Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Vinstri bakvörður: Ari Freyr Skúlason
Miðverðir: Guðmann Þórisson og Hallgrímur Jónasson
Tengiliðir: Aron Gunnarsson, Birkir Bjarnason og Arnór Smárason
Sóknarmenn: Rúrik Gíslason, Kjartan Henry Finnbogason og Gunnar Kristjánsson
Leikurinn hefst sem fyrr segir kl. 18:00 og er sýndur beint á þýsku sjónvarpsstöðinni DSF.