U21 karla leikur í Þýskalandi og Belgíu
U21 landslið karla hélt í morgun til Þýskalands en á föstudaginn leika þeir vináttulandsleik við Þjóðverja í Trier og hefst leikurinn kl. 18:00 að íslenskum tíma. Þaðan heldur liðið svo til Belgíu en att verður kappi við heimamenn á þriðjudaginn í undankeppni EM.
Leikurinn við Belga fer fram í Brussel og er síðasti leikur liðsins í undankeppni EM á þessu ári. Íslendingar eru með þrjú stig eftir fjóra leiki en Belgar hafa fjögur stig eftir þrjá leiki.