Bjarni Sigurðsson ráðinn markmannsþjálfari A karla
Bjarni Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, hefur verið ráðinn sem markmannsþjálfari í teymi Ólafs Jóhannessonar, þjálfara A-landsliðs karla. Bjarni, sem lék 41 leik fyrir A-landslið Íslands á árunum 1980-1991, hefur starfað sem markmannsþjálfari hjá ýmsum félögum á síðustu árum. Hann lék á sínum tíma með ÍA, Val og Brann í Noregi.