Kvennalandsliðið til Algarve í mars
Íslenska kvennalandsliðið mun taka þátt á hinu sterka Algarve Cup 3. - 13. mars næstkomandi. Ísland verður í C-riðli með Póllandi, Portúgal og Írlandi en auk leikja við þessar þjóðir, verður leikið um sæti á mótinu.
Þetta er annað árið í röð sem Ísland tekur þátt á Algarve Cup en á þessu móti leika flestar af sterkustu þjóðum heims í kvennaknattspyrnu.