Unglingadómaranámskeið á Grundarfirði
Unglingadómaranámskeið verður haldið á vegum KSÍ í Grundarfirði kl. 17:00 miðvikudaginn 7. nóvember.
Þátttakendur þurfa að hafa náð 15 ára aldri og hafa brennandi áhuga á knattspyrnu.
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á magnus@ksi.is.