Klara eftirlitsmaður UEFA í Englandi
Klara Bjarmarz, skrifstofustjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á landsleik Englands og Hvíta Rússlands í undankeppni EM kvenna. Leikurinn fer fram á Bescot Stadium í Walsall.
Leikurinn fer fram á morgun, laugardag, en Englendingar hafa unnið sinn eina leik í keppninni til þessa á meðan Hvíta Rússland hefur unnið einn leik en tapað tveimur.