HK vantar þjálfara fyrir 5. og 6. flokk kvenna
Knattspyrnudeild HK auglýsir eftir þjálfurum fyrir yngri flokka félagsins. Um er að ræða 6.fl. og 5.fl. kvenna.
HK leitar er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum við að efla starf knattspyrnudeildarinnar. HK hefur verið þekkt fyrir öflugt og frábært foreldrastarf í gegnum tíðina og því er vinnuumhverfi þjálfara félagsins mjög gott.
Lágmarks þjálfaramenntun skilyrði: KSÍ II
Nánari upplýsingar veitir íþróttastjóri HK, Óli Þór Júlíusson, olithor@hk.is, eða í síma 897-8730.