Allt klárt fyrir leikinn gegn Liechtenstein
Það styttist í leikinn gegn Liechtenstein en hann hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma. Leikmenn taka það rólega og undirbúa sig sem best fyrir leikinn. Á meðan hafa aðrir nóg fyrir stafni og búningastjórinn er með sitt klárt fyrir leikinn.
Myndina hér að ofan tók snyrtimennið, Björn Ragnar Gunnarsson búningastjóri, í klefanum eftir að hann hafði raðað upp. Eins og sjá má verða Íslendingar í hvítu búningunum í leiknum í kvöld.