1. stigs þjálfaranámskeið á Akureyri um helgina
KSÍ heldur 1. stigs þjálfaranámskeið á Akureyri um komandi helgi, 19. - 21. október. Námskeiðið fer fram í Þórsheimilinu, KA-heimilinu og Boganum og er bæði bóklegt og verklegt.
Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á siggi@ksi.is og eru áhugasamir hvattir til þess að skrá sig sem allra fyrst. Dagskrá námskeiðsins má sjá hér að neðan.