Landsliðið mætt til Liechtenstein
Íslenska karlalandsliðið leikur gegn Liechtenstein á morgun í undankeppni EM 2008. Leikurinn er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn og hefst leikurinn kl. 18:00 en útsending hefst 17:40.
Landsliðið er mætt til Liechtenstein og unir sér vel við góðar aðstæður. Viðrar vel á strákana en hitinn er um 20 stig í þessu fjallaríki. Landsliðshópurinn fór í gönguferð með menningarívafi í dag undir öruggri leiðsögn menningar- og göngugarpsins Björns Ragnars Gunnarssonar búningastjóra. Supu menn í sig söguna og fjallaloftið sem mun vonandi nýtast mönnum vel í undirbúningnum fyrir leikinn á morgun.
Símamyndir: Björn Ragnar Gunnarsson