U19 karla leikur gegn Belgum í kvöld
Íslenska U19 karlalandsliðið leikur annan leik sinn í undankeppni EM í kvöld þegar þeir mæta Belgum. Belgar unnu Rúmena örugglega í fyrsta leik sínum en Íslendingar töpuðu gegn heimamönnum í Englandi.
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í kvöld.
Byrjunarliðið (4-5-1):
Markvörður: Óskar Pétursson
Hægri bakvörður: Eggert Rafn Einarsson
Vinstri bakvörður: Kristinn Jónsson
Miðverðir: Hólmar Örn Eyjólfsson og Fannar Þór Arnarsson
Hægri kantur: Rafn Andri Haraldsson
Vinstri kantur: Viktor Unnar Illugson
Tengiliðir: Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði og Guðmundur Kristjánsson
Sóknartengiliður: Gylfi Þór Sigurðsson
Framherji: Björn Bergmann Sigurðsson