Sigur hjá U19 karla gegn Belgum
Íslendingar unnu Belga í kvöld í riðlakeppni fyrir EM en riðillinn er leikinn í Englandi. Lokatölur urðu 3-1 fyrir Íslendinga eftir að staðan hafði verið 2-1 í hálfleik. Íslendingar leika gegn Rúmenum á miðvikudaginn síðasta leik sinn í riðlinum.
Gylfi Þór Sigurðsson kom Íslendingum yfir á 2. mínútu og ellefu mínútum síðar bætti Kristinn Jónsson öðru marki við. Belgar minnkuðu muninn aðeins tveimur mínútum síðar. Eftir þessa fjörugu byrjun róaðist leikurinn heldur og staðan var 2-1 Íslendingum í vil þegar flautað var til hálfleiks.
Baráttan var mikil í seinni hálfleik en það voru Íslendingar sem voru sterkari og á 79. mínútu skoraði Jósef Kristinn Jósefsson þriðja mark Íslendinga og tryggði þar með góðan sigur okkar stráka.
Íslendingar leika lokaleik sinn í riðlinum á miðvikudaginn þegar þeir mæta Rúmenum. Íslendingar eiga möguleika á að komast upp úr riðlinum en tvö lið komast áfram í milliriðla.