Leikskráin fyrir leikinn gegn Lettum
KSÍ ákvað á þessu ári að hefja að nýju útgáfu leikskrár fyrir heimalandsleiki, en slík útgáfa hafði ekki verið í meira en áratug. Fyrir landsleikinn gegn Lettum á laugardag verður gefin út 20 blaðsíðna leikskrá með ýmsum áhugaverðum og gagnlegum upplýsingum.
Leikskráin verður seld við innganginn á leikvanginn og kostar aðeins kr. 500. Leitið eftir sölufólki, þar sem leikskráin er ekki seld í miðasölunni.
Skellið ykkur á eintak af leikskránni og geymið sem minjagrip um leikinn!
Meðal efnis að þessu sinni:
- Ávörp formanns og þjálfara
- Umfjöllun um fyrri viðureignir og eftirminnilegir leikir rifjaðir upp
- Umfjöllun um landsliðshópa beggja liða og þjálfarana
- Skilaboð frá stuðningsönnum
- Knattspyrnugetraun