Þjálfarar ársins útnefndir hjá KÞÍ
Á bikarráðstefnu Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands sem haldin var síðast liðna helgi í samvinnu við KSÍ útnefndi félagið þjálfara ársins. Willum Þór Þórsson og Elísabet Gunnarsdóttir þjálfarar Vals voru útnefndir þjálfarar ársins í Landsbankadeildum karla og kvenna fyrir árið 2007.
Viðurkenningu fyrir velunnin störf í þjálfun yngri flokka fengu þeir Jón Ólafur Daníelsson og Kári Jónasson.
Mynd: Jón Ólafur Daníelsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Willum Þór Þórsson og Kári Jónasson fengu viðurkenningar fyrir þeirra störf í þjálfun.