Miðasala hafin á Danmörk - Ísland á Parken
Miðasala á leik Danmerkur og Íslands í riðlakeppni EM 2008, sem fram fer á Parken 21. nóvember, er hafin hér á síðunni. Miðinn kostar 4.000 krónur en búast má við miklum fjölda Íslendinga á þennan leik.
Leikurinn er lokaleikur Íslands í riðlakeppninni en vart hefur verið við mikinn áhuga Íslendinga á þessum leik, ekki síst hjá Íslendingum búsettum á Norðurlöndunum. Nú er hægt að kaupa miða á leikinn hér á heimasíðu KSÍ.