Miðasala á Danmörk - Ísland hefst mánudaginn 8. október
Íslendingar leika lokaleik sinn í riðlakeppni EM 2008, 21. nóvember næstkomandi. Mótherjar verða Danir og er leikið á Parken í Kaupmannahöfn. Íslendingum gefst kostur á að kaupa miða á þennan landsleik í gegnum heimasíðu KSÍ.
Miðasalan hefst mánudaginn 8. október og kostar miðinn á leikinn 4.000 krónur.