Sigur hjá U17 karla og U19 kvenna
Tvö ungmennalandslið Íslands innbyrtu sigur í dag í riðlakeppni EM en þetta voru U17 karla og U19 kvenna. Strákarnir höfnuðu í þriðja sæti síns riðils en stelpurnar í U19 sigruðu í sínum riðli með fullt hús og eru komnar í milliriðla.
Strákarnir lögðu Litháen í dag og skoraði Ólafur Karl Finsen mark Íslendinga í fyrri hálfleik. Íslendingar voru sterkari aðilinn í leiknum í dag en náðu samt sem ekki að bæta við fleiri mörkum. Íslensku strákarnir enduðu því í þriðja sæti riðilsins.
Stelpurnar í U19 sigruðu í sínum riðli þar sem þær sigruðu í öllum sínum leikjum. Í dag voru það heimastúlkur í Portúgal er voru lagðar að velli 3-2. Staðan í hálfleik var 3-1 og voru það Elínborg Ingvarsdóttir, Laufey Björnsdóttir og Jóna Kristín Hauksdóttir sem skoruðu mörk Íslendinga.´
Þær hafa tryggt sér sæti í milliriðlum en riðlarnir verða leiknir 24. - 29. apríl. Tuttugu og fjórar þjóðir eru í milliriðlunum og verður þjóðunum skipt í sex riðla. Sigurvegarar hvers riðils komast í úrslitakeppnina ásamt þeirri þjóð er bestan árangur hefur í 2. sæti. Þessar sjö þjóðir leika í úrslitakeppninni ásamt gestgjöfum Frakka.