U17 karla hefur leik í dag
U17 karlalandsliðið hefur leik í dag í riðlakeppni EM en riðillinn er leikinn í Serbíu. Fyrsti leikur íslenska liðsins er gegn heimamönnum í Serbíu og hefst leikurinn kl. 13:30 að íslenskum tíma.
Ásamt Íslendingum og Serbum eru Litháen og Ísrael í riðlinum. Luka Kostic hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn og er það þannig skipað:
Byrjunarliðið(4-5-1):
Markvörður: Arnar Darri Pétursson
Hægri bakvörður: Davíð Már Stefánsson
Vinstri bakvörður: Gísli Páll Helgason
Miðverðir: Hafsteinn Briem og Haukur Örn Harðarson
Hægri kantur: Andri Fannar Stefánsson
Vinstri kantur: Þórir Guðjónsson
Tengiliðir: Finnur Orri Margeirsson, fyrirliði, Vilhjálmur Darri Einarsson og Ragnar Leósson
Framherji: Arnar Sveinn Geirsson