• mán. 17. sep. 2007
  • Leyfiskerfi

Árlegt gæðamat UEFA á leyfiskerfi KSÍ

UEFA
uefa_merki

Á miðvikudag mun fara fram víðtækt gæðamat á skipulagi leyfiskerfis KSÍ og því starfi sem unnið er við rekstur þess. Matið er framkvæmt árlega af fulltrúum SGS, sem er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki og sér um gæðamat á leyfiskerfum fyrir UEFA í aðildarlöndum sambandsins. 

Gríðarleg vinna hefur verið lögð í leyfiskerfið hér á landi, bæði hjá KSÍ og félögum í Landsbankadeild karla, og hefur Ísland verið í fararbroddi á meðal aðildarþjóða UEFA í innleiðingu kerfisins frá byrjun.