• fös. 07. sep. 2007
  • Landslið

U21 karla leikur við Slóvaka í dag

U21 landslið karla
ISL_AND_Jun2006

Íslenska U21 landslið karla leikur í dag við Slóvakíu í riðlakeppni EM 2009.  Leikið er í Senec í Slóvakíu og hefst leikurinn kl. 17:00 að íslenskum tíma.  Luka Kostic, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.

Byrjunarliðið (4-5-1):

Markvörður: Haraldur Björnsson

Hægri bakvörður: Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Vinstri bakvörður: Ari Freyr Skúlason

Miðverðir: Hallgrímur Jónasson og Heimir Einarsson

Tengiliðir: Aron Einar Gunnarsson, Bjarni Þór Viðarsson og Theódór Elmar Bjarnason

Hægri kantur: Rúrik Gíslason

Vinstri kantur: Birkir Bjarnason

Framherji: Guðjón Baldvinsson

Þetta er annar leikur íslenska liðsins í riðlinum en strákarnir töpuðu gegn Kýpur í fyrsta leiknum.  Liðið kemur svo heim og leikur við Belga á Akranesvelli, þriðjudaginn 11. september.