Mætum tímanlega og forðumst biðraðir
Áhorfendur á leik Íslands og Spánar eru hvattir til að mæta vel tímanlega á leikinn á laugardag til að forðast biðraðir og til að hita upp fyrir leikinn.
- Veitingasalan verður opin, þannig að upplagt er að fá sér snarl á vellinum
- Boðið verður upp á andlitsmálningu
- Áfram Ísland klúbburinn verður á staðnum með ýmsan skemmtilegan varning
- Dreift verður bláum bolum með textanum að þjóðsöngnum prentuðum á
- Laugardalsvöllurinn verður vígður með formlegri athöfn úti á velli
- Jóhann Friðgeirsson mun syngja þjóðsönginn
- Og fleira og fleira.
Í hálfleik mun síðan Ingó Idol halda uppi stuðinu og þá er um að gera að syngja með, enda er Ingó fótboltakappi sem veit um hvað þetta snýst allt saman.