Miðasala á Ísland - Norður Írland hafin
Miðasala á leik Íslands og Norður Írlands í riðlakeppni fyrir EM 2008 er hafin. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 12. september og hefst kl. 18:05.
Það er skammt stórra högga á milli hjá íslenska landsliðinu og knattspyrnuáhugamönnum þessa dagana og tveir stórleikir framundan í riðlakeppni EM 2008.
Miðasala er þegar í gangi á Ísland - Spánn og gengur hún ákaflega vel. Miðasala á Ísland - Norður Írland er nú einnig hafin og er miðaverð eftirfarandi:
Forsala til og með 11. sept.
- Sæti í rauðu svæði kr. 5.000
- Sæti í bláu svæði kr. 3.500
- Sæti i grænu svæði kr. 1.500
Miðaverð á leikdag 12. sept.
- Sæti í rauðu svæði kr. 5.500
- Sæti í bláu svæði kr. 4.000
- Sæti i grænu svæði kr. 2.000
Miðasala fer fram í miðasölukerfi frá midi.is
Börn 16 ára og yngri fá miðana með 50% afslætti.
Að kaupum loknum fær kaupandinn sendan e-miða (pdf skjal) í tölvupósti, sem hægt er að prenta út og nota sem aðgöngumiða á völlinn.
Einnig er hægt að kaupa miða í verslun Skífunnar á Laugavegi.