Landsliðshópur Íslands fyrir leiki gegn Spáni og N. Írlandi
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir leikina gegn Spáni, 8. september, og Norður Írlandi 12. september. Í hópnum eru 22 leikmenn og þar af eru tveir nýliðar.
Leikurinn gegn Spáni hefst kl. 20:00, laugardaginn 8. september, á Laugardalsvelli. Miðasala á leikinn er í fullum gangi og gengur mjög vel. Leikurinn við Norður Íra fer fram miðvikudaginn 12. september og hefst kl. 18:05 á Laugardalsvelli. Miðasala á þann leik hefst á næstu dögum og verður tilkynnt nánar um söluna hér á síðunni.