Ólína kemur inn í landsliðshópinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Slóvenum á sunnudaginn í riðlakeppni EM. Ólína G. Viðarsdóttir kemur inn í hópinn.
Breytingin er gerð vegna þess að Sif Atladóttir á við meiðsli að stríða og því var Ólína kölluð til. Hópurinn hélt utan í morgun og leikur við Slóvena á sunnudaginn en leikurinn hefst kl. 15:00.
Athygli skal vakin á því að leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu hjá RUV og hefst útsending þar kl. 14:55 á sunnudaginn.