Miðar á Ísland - Kanada fyrir þá sem eru í hjólastól
Þeir sem eru í hjólastól og hafa hug á því að fara á landsleik Íslands og Kanada á næstkomandi miðvikudag, eru beðnir um að hafa samband við Ragnheiði á skrifstofu KSÍ.
Vinsamlegast sendið póst á ragga@ksi.is með upplýsingum um nafn, heimilisfang og netfang. Einnig er hægt að hringja á skrifstofu KSÍ, 510-2900 og biðja um Ragnheiði.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 22. ágúst og hefst kl. 18:05.