Úrskurður í máli Magna gegn Völsungi
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur úrskurðað í máli Magna gegn Völsungi en kæra barst til nefndarinnar vegna leiks félaganna í 2. deild karla á Grenivíkurvelli þann 24. maí síðastliðinn. Nefndin úrskurðaði að úrslit leiksins skyldu látin standa.